Katla Fitness
Allir hóptímar

Hot Body í Boði

Sá allra heitasti í Reebok Fitness! Hér færðu allt í einum pakka fyrir helstu vöðvahópana ásamt fjöri og ríflega af svita. Þessi er möst í vikuplanið!

Um hóptímann

Lambhagi · Faxafen · Tjarnarvellir · Urðarhvarf

Unnið er með eigin líkamsþyngd og lóð, Body Bar stangir, bolta, diska og fl. Allur líkaminn er þjálfaður með markvissum æfingum, áhersla á djúpvöðva líkamans með mörgum endurtekningum, einnig frábærar teygjur. Tími sem þú verður að prófa!

Einn af okkar bestu tímum og sá vinsælasti. Við hönnuðum alhliða æfingarkerfi með áherslu á styrktarþjálfun og tónun vöðva.

Tímarnir eru ýmist kenndir í infrarauðum sal eða heitum sal.

Þessir tímar eru frábærir til að koma sér af stað hvort sem þú ert byrjandi eða lengra komin. Við leggjum áherslu á að allir geti komið þar sem þjálfari útfærir æfingar í nokkrum getustigum.. svo þú getur gert æfingarnar á þínum hraða og álagi.

EX - stendur fyrir krefjandi tími!

Hvernig bókar þú hóptíma?

01
Veldu stöðOpnaðu tímatöfluna og veldu stöðina sem hentar þér.
02
Finndu hóptímannLeitaðu að nafni hóptímans í vikudagskránni og veldu tíma sem hentar.
03
Bókaðu þigSmelltu á Bóka og staðfestu skráningu. Afbókun er gjaldfrjáls fram að 2 klst. fyrir tíma.

Skoða tímatöflu