Katla Fitness
Allir hóptímar

Infra Recovery

Ertu með vöðvabólgu, þreytta vöðva eða þarft smá innspýtingu af innri frið og vellíðan? Þá er Recovery fyrir þig!

Um hóptímann

Lambhagi · Faxafen · Tjarnarvellir · Kópavogslaug

Í Recovery tímunum er unnið markvisst að því losa um bólgur og sperrur og auka liðleika með hreyfiflæði, bandvefsnuddi og Yin djúpteygjum. Við notum litla bolta til að nudda úr bólgur og endurnæra þannig sogæðakerfi, styrkja bandvef og losa um stífni í vöðvum eftir æfingar eða vinnuálag.

Við tökum einnig Yin yoga stöður, yoga teygjur og virkar teygjuæfingar til að auka hreyfanleika, mýkja vöðva og bandvef.

Recovery er fyrir alla! Sérstaklega þá sem eru stífir, hafa verið undir miklu álagi eða tekið vel á því í ræktinni! Ef þú ert með vöðvabólgu, þreytta vöðva eða þarft smá innspýtingu af innri frið og vellíðan þá er Recovery fyrir þig!

Tímarnir eru ýmist kenndir í heitum, infrarauðum sal eða venjulegum sal.

Hvernig bókar þú hóptíma?

01
Veldu stöðOpnaðu tímatöfluna og veldu stöðina sem hentar þér.
02
Finndu hóptímannLeitaðu að nafni hóptímans í vikudagskránni og veldu tíma sem hentar.
03
Bókaðu þigSmelltu á Bóka og staðfestu skráningu. Afbókun er gjaldfrjáls fram að 2 klst. fyrir tíma.

Skoða tímatöflu