Katla Fitness

Hvernig kaupi ég námskeið?

  1. 1. Smelltu á "Kaupa námskeið"

    Undir hlekknum "Námskeið" finnur þú lista yfir öll námskeiðin okkar. Inni í hverju námskeiði er kauphlekkur eins og á meðfylgjandi mynd. Ef hann er ekki í boði þá er námskeiðið því miður uppselt, en þá er hægt að skrá sig á lista til að vakta námskeiðið.

  2. 2. Veldu dagsetninguna þegar námskeiðið hefst

    Á þessum næsta glugga þarf að velja dagsetninguna þegar námskeiðið hefst. Engar áhyggjur, ef þú valdir vitlausa dagsetningu þá er hægt að lagfæra það í seinna skrefi.

    Smelltu svo á "Næsta"

  3. 3. Smelltu á boxið merkt "Námskeið"

    Í þessu skrefi þarf að velja hverskonar "áskrift" þú ætlar þér að kaupa, í þessu tilviki velur þú Námskeið.

    Smelltu svo á "Næsta"

  4. 4. Veldu hvaða námskeið þú ætlar á

    Ef að dagsetningin sem þú valdir í skrefi 2 er vitlaus þá mun "poppa" upp gluggi og biðja þig um að velja rétta dagsetningu (sú dagsetning á að standa á námskeiðinu í þessari valmynd)

    Smelltu svo á "Næsta"

  5. 5. Fylltu inn persónuupplýsingar

    Í þessu skrefi þarf að fylla inn allar persónuupplýsingar, ath. að kassar merktir með * er skilyrði að fylla í.

    Smelltu svo á "Kaupa og greiða"

    Þá verður þú send/ur á örugga greiðslusíðu Borgunar/Salt þar sem þú fyllir inn greiðsluupplýsingar og staðfestir greiðslu.

    Ath. að ferlinu er ekki lokið fyrr en búið er að ganga frá greiðslu.