Katla Fitness
Taka Augnmyndir

svona skráir þú augun þín

  1. 01

    sjálfsafgreiðslu-tölvan

    Í andyrinu er Sjálfsafgreiðslu-tölvan.

    Þar smellir þú á miðju takkann "Taka augnmynd".

    ath. það er aðeins hægt að taka augnmyndir á eða eftir upphafsdag samnings.

    Ef þú lendir í vandræðum getur þú smellt á "Græna takkann" á lyklaborðinu til að fá samband við sérfræðing í þjónustuverinu okkar.

  2. 02

    hvað er pin númerið?

    Þegar þú kaupir þér aðild þá færðu tölvupóst með PIN númeri sem þú notar til að auðkenna þig í fyrsta skipti fyrir augnmyndatöku.

    Ath. ef þú hefur ekki PIN númerið þá er hægt að kalla eftir því með því að ýta á "Gleymdir þú PIN númerinu"

  3. 03

    tekur augnmyndir

    Næst smellir þú af þér tveimur myndum í augnskannanum sem er við hliðin á skjánum. (ath. þú verður að vera sirka 30 cm frá augnskannanum)

    Ath. röddin í augnskannanum segist vera búin að taka myndir eftir fyrstu myndina.. það gæti verið ruglandi :-) það er tekin mynd tvisvar.

  4. 04

    gengur inn um hliðið

    Þegar þú ert búin/n að smella af þér augnmynd þá ert þú komin inn í kerfið okkar. Núna þekkja aðgangshliðin þig og hleypa þér inn í stöðina!

    ath. Það gæti tekið 30-90sek að skila sér alla leið í hliðið frá því þú klárar myndatökuna ;-)