Lambhagi
Lambhagavegur 15 | 113 Reykjavík
*Fáðu sólarhringsaðgang HÉR
Um stöðina
Stöðin okkar í Lambhaga er mesti töffarinn. Dökkir veggir, hátt til lofts og nóg pláss. Það er geggjað að kíkja í zumba, hjól og infrarauða salinn! Nóg pláss fyrir alla. CF Katla er líka með eitt af sínum boxum þar. Svo er toppurinn að enda góða æfingu á potti og gufubaði! Þeir sem eru 18 ára og eldri geta fengið aðgang að henni allan sólarhringinn.
Aðstaða
Gufa
Gengið er í gegnum búningsklefana. Þar er inni sauna og svo er frábær vatnsgufa úti við pottasvæðið sem ber ekki mikið á.
Heitur pottur
Gengið er í gegnum búningsklefa og þar út, farið niður tröppur á pottasvæðið. Þar er heitur pottur og svo annar ískaldur.
Tækjasalur
Stór og virkilega flottur tækjasalur með öllu því helsta. Frábær lyftingaraðstaða, fullt af þrektækjum, stórt gervigras fyrir sleða og nóg pláss og búnaður fyrir "functional" æfingar.
Heitur salur
Ótrúlega kósý Infrared hitaður salur búinn öllum þeim lóðum, dýnum og teygjum sem þarf.
Spinning
Stór og töffaralegur salur með 40 Schwinn spinning hjólum. Alvöru hljóðkerfi diskóljós og læti.
Búningsklefar
Stórir búningsklefar með fullt af skápum og góð snyrtiaðstaða. Góðir speglar og lýsing, hárblásarar og sléttujárn.
CrossFit
CrossFit Katla er með geggjaðan sal á 1.hæð. Þar skortir ekkert fyrir alvöru æfingu.

