Salalaug
Versalir 3 | 201 Kópavogur
Um stöðina
Þessi litla stöð sem staðsett er á efri hæð sundlaugarinnar Salalaug í Versölum hefur mikinn sjarma. Huggulegur og bjartur tækjasalur tekur á móti þér þegar þú kemur og hér má finna allan aldurshóp fólks stunda æfingar sínar í þessari stöð. Rólegheit og heimilislegt andrúmsloft. Það er mjög vinsælt að smella sér á góða æfingu í tækjasal og fara svo í sund beint á eftir. ATH þessi stöð fylgir opnunartíma Sundlaugarinnar.
Aðstaða
Gufa
Innangengt er frá sameiginlegum búningsklefum og beint á sundlaugarsvæðið þar sem eru amk 2 heitir pottar og eimbað.
Heitur pottur
Innangengt er frá sameiginlegum búningsklefum og beint á sundlaugarsvæðið þar sem eru amk 2 heitir pottar og eimbað.
Tækjasalur
Nettur tækjasalur sem hefur allt sem þarf fyrir góða æfingu. Þoltæki ásamt góðri lyftingaraðstöðu.
Sundlaug
Meðlimir Reebok Fitness hafa aðgang að sundlaug Salalaugar og allri hennar aðstöðu.
Búningsklefar
Sameiginlegir búningsklefar á neðri hæð. Þar má finna læsta skápa og góða snyrtiaðstöðu.

