Katla Fitness
Allir þjálfarar

Aníta

Aníta

Um mig

Hóptímakennari

Ef þú ert hugmyndasmiður, leiðtogi, viðskiptaskáld eða almennur brjálæðingur sem lætur hluti gerast og lifir fyrir eldinn og tilganginn í lífinu, þá verðum við örugglega bestu vinir.

Svo kenni ég hópatíma í Reebok Fitness og elska það í drasl.

Þú finnur mig helst í Hot Body, Buttlift Extreme, Hot Trainer Mix, Hot Fitness Yoga og Foam & Flex. Svo kenni ég líka Core, Sixpack Attack og Tabata þegar þannig liggur á stundaskránni.

Hvað sem við bröllum saman þá er alltaf öflug keyrsla, hiti, sviti og almenn gleði með tónlistina í botni.

Lífsmottó: Það er alltaf sjúklega gaman og leiðinlegu fólki er ekki boðið

Uppáhaldsmatur: Varla elduð steik er uppáhalds en ítalskar, spænskar og franskar matarhefðir parast afar vel við mig

Menntun og reynsla

  • Ég er leiðtogaráðgjafi og mínir skjólstæðingar eru upp til hópa kraftmiklir einstaklingar sem láta drauma rætast. Ég er með meistaragráðu í jákvæðri sálfræði og leiðtogaþjálfun og B.S. gráðu í stjórnun og leiðtogafræði og sinni mest einstaklingsráðgjöf í bland við smíði hinna ýmsu netnámskeiða fyrir fólk sem vill meira út úr lífinu.

Hvar finnurðu mig?