Katla Fitness
Allir þjálfarar

Áslaug Guðný

Áslaug Guðný

Um mig

Einkaþjálfari · Hóptímakennari

Ég er ung móðir sem er búsett í Reykjavík. Ég var mikið í íþróttum sem barn og hélt því áfram sem unglingur, þá sérstaklega í sundi og lyftingum.

Á meðgöngu var ég mjög veik og þyngdist mikið. Árið 2021 ákvað ég að fara í efnaskiptaaðgerð. Sú aðgerð bjargaði ekki aðeins líkamlegri heilsu minni heldur einnig andllegri.

Ég hef því reynslu og þekkingu á því sem viðkemur efnaskiptaaðgerðum og hvað best sé að gera eftir slíkt inngrip.

Sérhæfing:

- Hreyfing með og eftir meðgöngu (sérstaklega eftir mikla grindargliðnun og/eða erfiða fæðingu) - Hreyfing og næring fyrir fólk sem farið hefur í efnaskiptaaðgerð - Liðleikaþjálfun og endurhæfing á jafnvægi í vöðvauppbyggingu líkamans - Plöntumiðað mataræði og lífsstíll - Æfingar fyrir aldraða - Þjálfun eftir fót- og ökklabrot - EMS styrktarþjálfun - Fjarþjálfun

Mottó: Áfram með smjörlíkið

Menntun og reynsla

  • Einkaþjálfararéttindi hjá ISSA árið 2015 (Dúx)
  • Stúdentspróf frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 2016
  • Námskeið í Rehabilitation hjá Atlas Transformation í Zurich, Sviss, árið 2018
  • EMS Certification hjá Atlas Transformation í Zurich, Sviss, árið 2018
  • B.A.- próf í Guð-og trúarbragðafræði frá Háskóla Íslands 2023 (1. einkun)
  • Einkaþjálfararéttindi frá Einkaþjálfaraskóla World Class 2023 (Semi-Dúx)
  • Skyndihjálparnámskeið Rauða Krossins á tveggja ára fresti.

Hvar finnurðu mig?