Katla Fitness
Allir þjálfarar

Ingbjörg K. Halldórsdóttir

Ingbjörg K. Halldórsdóttir

Um mig

Einkaþjálfari · Hóptímakennari

Ég er sjálfstætt starfandi íþróttafræðingur hjá iHeilsu og Kötlu Fitness og kenni einka-, para-, stoðkerfis- og orkuþjálfun auk einstaklingsmiðaðra hóptíma. Ég býð upp á þjálfun fyrir allan aldur; börn, ungmenni, fullorðna og eldri borgara.

Ég hef þjálfað í yfir 25 ár og starfað mikið með sjúkraþjálfurum. Ég er í samstarfi við VIRK og og þú færð nótu fyrir stéttarfélagið og vinnuna.

Bakgrunnur minn er mjög fjölbreyttur; allt frá því að starfa með sjúkraþjálfurum í Danmörku, vera í erlendri færsluhirðingu kreditkorta og yfir í að vera flugfreyja í heimstúr hjá rokkstjörnum.

Ég þrífst á að læra nýja hluti og vera í samskiptum við fólk.

Uppáhaldsmatur er jólamaturinn; rjúpa með tilheyrandi meðlæti og sósu.

Uppáhaldsmóttó „Það gerir enginn neitt fyrir mig, en margir munu aðstoða ef ég hlusta og þigg hjálpina“.

Menntun og reynsla

  • Ég hef yfirgripsmikla þekkingu á mataræði og næringu sem og þjálfun kvenna á meðgöngu og eftir barnsburð.
  • Sömuleiðis hef ég þjálfað börn og unglinga í áraraðir í íþróttaskólum og frjálsum íþróttum, einnig aldraða í sundleikfimi og mætt heim til fólks og kennt æfingar.

Hvar finnurðu mig?