Katla Fitness
Öll námskeið

Breyttur lífstíll með Katrínu og Siggu

NÝTT

8 september, 2026 · 12 vikur · 24.900.-

12 vikna námskeið fyrir alla sem vilja koma sér af stað. Fjölbreytt og skemmtileg hreyfing sem hjálpar þér að byggja upp styrk, þol og betri líðan — skref fyrir skref.

Styrkur80%
Úthald60%
Liðleiki50%
Núvitund100%

Um námskeiðið

Urðarhvarf

Breyttur lífstíll með Katrínu og Siggu er 12 vikna námskeið fyrir alla sem vilja koma sér af stað í hreyfingu á skemmtilegan og raunhæfan hátt.

Á námskeiðinu verður lögð áhersla á alhliða heilsu, aukinn styrk, betra þol og meiri vellíðan með fjölbreyttri hreyfingu sem hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja finna taktinn aftur.

Í hverri viku eru: 1 heitur tími 1 styrktartími 1 útitími (föstudagar)

Markmið námskeiðsins er að hjálpa þátttakendum að byggja upp sterkari líkama og betri venjur til framtíðar. Eftir námskeiðið eiga þátttakendur að upplifa meiri orku, aukið sjálfstraust í hreyfingu og betra úthald í daglegu lífi.

Námskeiðið hentar þeim sem vilja: • Komast af stað eftir pásu • Byggja sig upp á öruggan hátt • Verða sterkari og bæta þol • Geta gengið á fjöll og fell • Geta gengið eða hlaupið 2–3 km

Lögð er áhersla á jákvætt umhverfi, stuðning og að hver og einn geti unnið út frá sinni getu.

Hvað er infra?

Það sem innrauður hiti hefur fram yfir annað er að hita líkamann vel og með því móti eykst teygjanleiki bandvefjarins svokallaða sem leiðir til aukins hreyfanleika.

Loftið er talið heilnæmara fyrir þá sem viðkvæmir eru og er talið að þessi hitun hafi styrkjandi áhrif á ónæmiskerfi.

Ljósið hefur hreinsandi áhrif þar sem það ýtir undir efnaskipti og eykur framleiðslu á svita.

Hitinn sem ljósið sendir inn í líkamann bætir meltingu , örvar blóðrás og vinnur gegn hvers konar sýkingum.

Innrauði hitinn hefur hjálpað gigtarsjúklingum, vefjagigtarsjúklingum og íþróttamönnum vegna meiðsla í liðamótum og vöðvum þar sem hitinn hjálpar til við að losa um spennu og örva heilbrigða frumumyndun.

Tilvalið fyrir stressaða og þreytta líkama.

Hvernig kaupir þú námskeið?

01
Smelltu á KaupaVeldu námskeiðið og smelltu á Kaupa fyrir þá stöð sem hentar þér.
02
Veldu tíma í dagatalinuSmelltu á einn af tímunum sem birtast — skiptir ekki máli hvaða tími.
03
Skráðu þig og greidduSmelltu á Skráðu þig og síðan Greiða núna. Ef greiðsla mistekst þarftu að skrá kreditkort við aðganginn.

Kaupleiðbeiningar