Katla Fitness
Öll námskeið

Grunnnámskeið CrossFit – Haustið 2026

24 ágúst, 2026 · 11 dagar · 18.950.-

Nú er Grunnnámskeið CrossFit Kötlu 24. ágúst - 3. september komið í sölu og er þetta frábært tækifæri til að hefja haustið af krafti á öruggan, skemmtilegan og markvissan hátt.

Styrkur50%
Úthald50%
Liðleiki30%
Núvitund10%

Um námskeiðið

Lambhagi

Grunnnámskeið CrossFit

Við köllum september oft litla janúar . Sumarfríið er búið, rútínan tekur við á ný og margir nýta tækifærið til að setja heilsuna aftur í forgang. Grunnnámskeiðið er fullkomin leið til að koma sér af stað og byggja upp góðar æfingavenjur fyrir veturinn.

Á námskeiðinu förum við yfir helstu undirstöðuatriði CrossFit, þar á meðal:

Grunnstyrktaræfingar

Tækni í helstu stangaræfingum

Fimleikahreyfingar og skalanir

Hvernig þú aðlagar æfingar að þinni getu

Þú þarft enga fyrri reynslu af CrossFit eða líkamsrækt. Námskeiðið hentar öllum sem vilja byrja á réttan hátt með góðri leiðsögn frá reyndum þjálfurum.

Haustið er frábær tími til að byrja. Við hjálpum þér að komast hratt, örugglega og með sjálfstraust af stað í CrossFit.

Við hlökkum til að taka á móti þér í Kötlu!

Hvað er infra?

Það sem innrauður hiti hefur fram yfir annað er að hita líkamann vel og með því móti eykst teygjanleiki bandvefjarins svokallaða sem leiðir til aukins hreyfanleika.

Loftið er talið heilnæmara fyrir þá sem viðkvæmir eru og er talið að þessi hitun hafi styrkjandi áhrif á ónæmiskerfi.

Ljósið hefur hreinsandi áhrif þar sem það ýtir undir efnaskipti og eykur framleiðslu á svita.

Hitinn sem ljósið sendir inn í líkamann bætir meltingu , örvar blóðrás og vinnur gegn hvers konar sýkingum.

Innrauði hitinn hefur hjálpað gigtarsjúklingum, vefjagigtarsjúklingum og íþróttamönnum vegna meiðsla í liðamótum og vöðvum þar sem hitinn hjálpar til við að losa um spennu og örva heilbrigða frumumyndun.

Tilvalið fyrir stressaða og þreytta líkama.

Hvernig kaupir þú námskeið?

01
Smelltu á KaupaVeldu námskeiðið og smelltu á Kaupa fyrir þá stöð sem hentar þér.
02
Veldu tíma í dagatalinuSmelltu á einn af tímunum sem birtast — skiptir ekki máli hvaða tími.
03
Skráðu þig og greidduSmelltu á Skráðu þig og síðan Greiða núna. Ef greiðsla mistekst þarftu að skrá kreditkort við aðganginn.

Kaupleiðbeiningar