Katla Fitness
Öll námskeið

Infra Fusion Pilates - Morguntímar

8 september, 2026 · 6 vikur · 13.900.-

Styrktu kvið- og bakvöðva og bættu líkamsstöðuna. Námskeiðið hentar vel öllum. Heildræn þjálfun fyrir líkama & sál.

Styrkur50%
Úthald5%
Liðleiki30%
Núvitund15%

Um námskeiðið

Lambhagi

Infra Fusion Pilates er kennt í Infrared , heitum sal.

Infra Fusion Pilates styrkir vel allan líkamann og er sérhannað til að þjálfa stoðkerfið og fyrir þá sem hafa vefjagigt.

Í Infra Fusion Pilates er blandað saman Fitness Yoga, Pilates æfingum, bandvefslosun, Trigger Point Pilates, teygjum og unnið er með eigin líkamsþyngd og FitBall bolta.

Við vinnum vel með djúpvöðva líkamans. Unnið er með að styrkja vel kvið- og bakvöðva sem bætir líkamsstöðu og færir þátttakendum langa fallega vöðva. Jafnvægi og aukinn liðleiki er mikilvægt atriði í þjálfun í Fusion Pilates. Unnið er með eigin líkamsþyngd, handlóð og teygjur með þyngdir sem henta hverjum og einum. Einnig eru stóru vöðvarnir þjálfaðir í kvið og baki, læri, rassvöðvum, styrkjum mjaðmir, grindarbotn, efri líkama og axlir og endurnærir líkama og sál losar um streitu í líkamanum og eykur orku. Tímarnir enda á góðri slökun, bandvefslosun og teygjum fyrir líkama & sál.

Hvað er infra?

Það sem innrauður hiti hefur fram yfir annað er að hita líkamann vel og með því móti eykst teygjanleiki bandvefjarins svokallaða sem leiðir til aukins hreyfanleika.

Loftið er talið heilnæmara fyrir þá sem viðkvæmir eru og er talið að þessi hitun hafi styrkjandi áhrif á ónæmiskerfi.

Ljósið hefur hreinsandi áhrif þar sem það ýtir undir efnaskipti og eykur framleiðslu á svita.

Hitinn sem ljósið sendir inn í líkamann bætir meltingu , örvar blóðrás og vinnur gegn hvers konar sýkingum.

Innrauði hitinn hefur hjálpað gigtarsjúklingum, vefjagigtarsjúklingum og íþróttamönnum vegna meiðsla í liðamótum og vöðvum þar sem hitinn hjálpar til við að losa um spennu og örva heilbrigða frumumyndun.

Tilvalið fyrir stressaða og þreytta líkama.

Meðmæli

  • Heitu tímarnir hjá Unni eru alveg æðislegir. Styrkjandi, hvetjandi og slakandi. Hægt að fara á sínum eigin hraða og eins langt inní æfinguna eins og maður treystir sér til. Orka sem er svo góð og algjörlega þess virði að leggja smá akstur á sig.

    Anna frá Borgarnesi

Hvernig kaupir þú námskeið?

01
Smelltu á KaupaVeldu námskeiðið og smelltu á Kaupa fyrir þá stöð sem hentar þér.
02
Veldu tíma í dagatalinuSmelltu á einn af tímunum sem birtast — skiptir ekki máli hvaða tími.
03
Skráðu þig og greidduSmelltu á Skráðu þig og síðan Greiða núna. Ef greiðsla mistekst þarftu að skrá kreditkort við aðganginn.

Kaupleiðbeiningar