Katla Fitness
Öll námskeið

Sterkar Konur 50+

NÝTT

7 september, 2026 · 6 vikur · 16.900.-

Fyrir konur á besta aldri. Aukinn styrkur með markvissum æfingum.

Styrkur70%
Úthald30%
Liðleiki30%
Núvitund50%

Um námskeiðið

Faxafen

Sérstaklega hannað fyrir konur á besta aldri sem vilja byggja upp styrk, orku og sjálfstraust með markvissri styrktarþjálfun.

Rétt styrktarþjálfun getur skipt gríðarlegu máli

Þegar við byggjum upp vöðvamassa: • hækkar grunnbrennsla • við styrkjum beinþéttni • bætum líkamsstöðu og styrk • styðjum betur við hormónin okkar

Á námskeiðinu lærir þú: • að lyfta lóðum með góðri tækni • að byggja upp styrk á öruggan hátt • að skilja betur líkamann og hormónin • að vinna með líkamann — ekki á móti honum

Æft er í lokuðum hópi 2x í viku með stuðningi og markvissri leiðsögn.

Fyrst þarf að Gerast Meðlimur hjá Kötlu Fitness og síðan skrá sig á námskeiðið - hér -

Vertu hjartanlega velkomin

Barre (Infrared)

Hefst: 7 september

Hvað er infra?

Það sem innrauður hiti hefur fram yfir annað er að hita líkamann vel og með því móti eykst teygjanleiki bandvefjarins svokallaða sem leiðir til aukins hreyfanleika.

Loftið er talið heilnæmara fyrir þá sem viðkvæmir eru og er talið að þessi hitun hafi styrkjandi áhrif á ónæmiskerfi.

Ljósið hefur hreinsandi áhrif þar sem það ýtir undir efnaskipti og eykur framleiðslu á svita.

Hitinn sem ljósið sendir inn í líkamann bætir meltingu , örvar blóðrás og vinnur gegn hvers konar sýkingum.

Innrauði hitinn hefur hjálpað gigtarsjúklingum, vefjagigtarsjúklingum og íþróttamönnum vegna meiðsla í liðamótum og vöðvum þar sem hitinn hjálpar til við að losa um spennu og örva heilbrigða frumumyndun.

Tilvalið fyrir stressaða og þreytta líkama.

Hvernig kaupir þú námskeið?

01
Smelltu á KaupaVeldu námskeiðið og smelltu á Kaupa fyrir þá stöð sem hentar þér.
02
Veldu tíma í dagatalinuSmelltu á einn af tímunum sem birtast — skiptir ekki máli hvaða tími.
03
Skráðu þig og greidduSmelltu á Skráðu þig og síðan Greiða núna. Ef greiðsla mistekst þarftu að skrá kreditkort við aðganginn.

Kaupleiðbeiningar