Sterkar Konur – Sterkari
NÝTT25 ágúst, 2026 · 6 vikur · 13.900.-
Viltu halda áfram að byggja upp styrk, líkamsstjórn og sjálfstraust? Við lyftum þyngra, vinnum markvissar og förum dýpra í framkvæmd, stöðugleika og hreyfingar. Fyrir þær sem hafa lokið Sterkar konur grunnnámskeiði og Framhaldi og eru tilbúnar í næsta level.
Um námskeiðið
Urðarhvarf
Sterkari er 6 vikna framhaldsþjálfun fyrir þær konur sem hafa lokið Sterkar Konur (30+. 40+ og 50+) og Sterkar konur – Framhald og vilja halda áfram að byggja upp styrk, sjálfstraust og tengingu við líkamann.
Við vinnum markvisst áfram með:
• stigvaxandi álag • styrk og vöðvauppbyggingu • unilateral vinnu og jafnvægi • hagnýtar (functional) hreyfingar • kjarna (core) og stöðugleika • þol og líkamsstjórn
Þjálfunin byggir á sömu grunnhreyfingum og áður, en nú förum við dýpra í framkvæmd, stjórn og styrk.
Markmiðið er ekki að gera meira — heldur að verða sterkari.
Hvað er infra?
Það sem innrauður hiti hefur fram yfir annað er að hita líkamann vel og með því móti eykst teygjanleiki bandvefjarins svokallaða sem leiðir til aukins hreyfanleika.
Loftið er talið heilnæmara fyrir þá sem viðkvæmir eru og er talið að þessi hitun hafi styrkjandi áhrif á ónæmiskerfi.
Ljósið hefur hreinsandi áhrif þar sem það ýtir undir efnaskipti og eykur framleiðslu á svita.
Hitinn sem ljósið sendir inn í líkamann bætir meltingu , örvar blóðrás og vinnur gegn hvers konar sýkingum.
Innrauði hitinn hefur hjálpað gigtarsjúklingum, vefjagigtarsjúklingum og íþróttamönnum vegna meiðsla í liðamótum og vöðvum þar sem hitinn hjálpar til við að losa um spennu og örva heilbrigða frumumyndun.
Tilvalið fyrir stressaða og þreytta líkama.